Stelpur úr 7. og 8. bekk eru í valáfanga sem heitir hár og list. Kennari þeirra er Rósa Kristín Bjarnadóttir og þar er sko ýmislegt skemmtilegt í gangi. Í vikunni fóru þær og heimsóttu hársnyrtistofuna Betra hár þar sem hársnyrtimeistarinn Sara Símonardóttir fræddi þær um allt það helsta í hártískunni í dag. Einnig fengu allar stúlkurnar greiðslur í hárið.