Stjórnsýsla Grindavíkurbæjar tók risastórt skref inn í nútímann síðastliðinn þriðjudag þegar fundur bæjarstjórnar var í fyrsta skipti sendur út í beinni útsendingu á netinu. Tveir örlitlir tæknihnökrar komu upp í þessari fyrstu útsendingu en þeir voru báðir afgreiddir fimlega af tæknimanni í útsendingu og ættu ekki að koma fyrir aftur. Upptökuna má sjá í heild sinni hér að neðan.