Grindavíkurbær óskar eftir starfsmanni í þjónustumiðstöð. Leitað er að metnaðarfullum og traustum einstakling, sem hefur áhuga á fjölbreyttum verkefnum. Um tímabundið starf er að ræða til 1. janúar 2017, með möguleika á framlengingu.
Verksvið og ábyrgð
• Umsjón með viðhaldi á smávélum.
• Minniháttar viðhald á bílum þjónustumiðstöðvar. t.d. olíuskipti o.fl.
• Minniháttar viðhald á vatns- og fráveitu.
• Ýmis viðhaldsvinna innan stofnanna bæjarins.
• Önnur tilfallandi störf í þjónustumiðstöð, m.a. afleysingar á þjónustubifreið, viðhald á opnum svæðum, snjómokstur o.fl.
Hæfniskröfur
• Starfsreynsla frá sambærilegum verkefnum sem nýst getur í starfi.
• Þekking og reynsla af því að vinna með og viðhalda vélum.
• Góð almenn tölvukunnátta.
• Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum.
• Bílpróf og vinnuvélaréttindi.
• Meirapróf/fólksflutninga 10 farþega eða Gamla ökuskírteinið ... Ökuskírteini sem voru í gildi 1. mars 1988
• Rík þjónustulund við íbúa bæjarins.
• Lipurð í mannlegum samskiptum.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Suðurnesja. Umsækjandi þarf að vera reiðubúinn að ganga bakvaktir skv. bakvaktarkerfi þjónustumiðstöðvar.
Umsækjandi þarf að vera með hreint sakavottorð og skila því inn þegar þess er óskað.
Konur, jafnt sem karlar, eru hvattar til að sækja um starfið.
Umsóknareyðublöð fyrir starfið má nálgast hér.
Senda skal umsóknir til Sigmars B. Árnasonar byggingafulltrúa á bygg@grindavik.is, skila í afgreiðslu Grindavíkurbæjar Víkurbraut 62, eða senda á póstfangið:
Grindavíkurbær
„Starfsmaður í þjónustumiðstöð"
Víkurbraut 62
240 Grindavík
Umsóknarfrestur er til og með 13. mars nk. Nánari upplýsingar veitir byggingafulltrúi í síma 420 1109.