Saltfiskréttir - uppskriftarkeppni lýkur 23. mars

  • Fréttir
  • 20. mars 2009

Saltfisksetrið og félagið Matur- saga- menning standa fyrir uppskriftarkeppni um besta saltfiskréttinn. Laufey Steingrímsdóttir næringarfræðingur og Sigurvin Gunnarsson matreiðslumeistari velja fimm uppskriftir. Hægt er að senda uppskriftir í tölvupósti til matarsetur@matarsetur.is fyrir 23. mars.

 Vinningsuppskriftir verða matreiddar í lok menningarviku Grindavíkur 21. - 28. mars og þrjár bestu valdar af þeim. 1.-5. vinningur kr. 30.000, 20.000, 10.000 og tveir 5.000 kr. vinningar. Vinningsuppskriftir verða sýnilegar á heimasíðum www.matarsetur.is og www.saltfisksetur.is

Jafnframt verður í menningarviku hin hefðbundna saltfisksýning Saltfisksetursins Hafnargötu 12a Grindavík Boðið verður upp á matarsmakk, saltfiskbollur o.fl. sjá nánar um viðburði í menningarviku á www.grindavik.is

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!