Yngsta kynslóðin í Grindavík fær sinn skerf af menningarveislunni en á sunnudaginn kl. 17.00 verður Brúðuleikhús í Kvennó. Hér er á ferðinni sagan sígilda um Mjallhvít og dvergana sjö eins og við þekkjum hana flest en í sýningunni leiðir sögukonan börnin í gegnum hana á nokkuð óvenjulegan hátt, nefnilega með töfrabrögðum, myndskyggnum, brúðum, grímum og söng.
Það er Helga Arnalds sem er hér í hlutverki sögukonunnar sem hefur um árabil ferðast milli skóla og leikskóla í landinu og sagt börnum sögur og ævintýr. Sýningar hennar og Leikhússins 10 fingur hafa vakið aðdáun fyrir framúrskarandi listrænt handbragð og hugvitssemi í leikbrúðulist.
Sýningin er í boði foreldrafélaganna á Króki og Laut.
Umsögn um sýninguna:
„Sýningin er afar falleg á að líta...Ekkert hik eða fum er á þessari færu brúðuleikkonu sem hlýtur að teljast i hópi þeirra bestu á þessu sviði hérlendis - og þótt víða væri leitað".
Soffía Auður Birgisdóttir - Morgunblaðinu.