Línuskipið Fjölni GK 657 sem Vísir gerir út varð vélarvana í gær um 30 sjómílur suður af Grindavík. Björgunarsveitin Þorbjörn var kölluð út og tók það áhöfnina á Oddi V. Gíslasyni um 2 tíma að sigla að skipinu. Heimferðin gekk þó öllu hægar enda Fjölnir um 40 metrar langur og þungur í togi eftir því, en skipin komu til hafnar í Grindavík um miðnætti í gær.
Lítið hætta var á ferðum í gær enda veður stillt. Í samtali við Víkurfréttir sagði Rúnar Friðþjófsson skipstjóri að skipið hefði einfaldlega orðið vélarvana. Fjölnir GK er kominn til ára sinna en nýr Fjölnir liggur bundinn við bryggju í Grindavík og bíður þess að leysa gamla skipið af hólmi.
Mynd: Heimasíða Vísis