Konudagurinn var haldinn hátíðlegur að vanda í flestum bekkjum miðstigds og unglingastig á föstudaginn var. Drengirnir buðu stúlkunum til veislu og dekruðu við þær allan daginn. Þeir slógu aldeilis í gegn enda búnir að baka þessar líka fínu tertur og útbúa kræsingar eins og sést á meðfylgjandi myndum. Fleiri myndir munu birtast á Facebook-síðu skólans á næstunni.