Þessa dagana stendur yfir tónleikaröðin Söngvaskáld á Suðurnesjum í Hljómahöll en markmið þeirra er að kynna ríka tónlistarhefð og söngvaskáld af Suðurnesjum. Næst á dagskrá eru tónleikar þar sem flutt verða verk eftir Sigvalda Kaldalóns en Sigvaldi bjó og starfaði í Grindavík í 16 ár, 1929-45. Til að hita upp fyrir tónleikana var smá uppákoma á Bryggjunni á dögunum þar sem þeir Elmar Þór og Arnór Vilbergs mættu og tóku smá tóndæmi fyrir gesti. Sérstök athygli er vakin á að tónleikarnir verða einnig á dagskrá í Menningarviku, þann 13. mars og verða í Grindavíkurkirkju.
Tónleikarnir verða í Hljómahöll þann 3. mars næstkomandi.
Á meðfylgjandi mynd eru þeir bræður, Sigvaldi og Eggert Stefánssynir, þar sem þeir sitja undir vegg á fögrum sumdardegi í Grindavík snemma á síðustu öld.