Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) hafa unnið að gerð kennsluefnis fyrir fjármálafræðslu unglinga sem nefnt hefur verið Fjármálavit. Kennsluefnið var þróað í samstarfi við kennara og kennaranema og er ætlað að mæta þörfinni á samræmdu kennsluefni í fjármálafræðslu í grunnskólum.
Gestaleiðbeinendur í nafni Fjármálavits komu í heimsókn til 10. bekkja Grunnskóla Grindavíkur í vikunni og sýndu nemendur efninu mikinn áhuga. Myndir frá heimsókninni má sjá á Facebooksíðu Fjármálavits. Lögð er áhersla á hlutleysi Fjármálavits hvað varðar fyrirtækin sem að verkefninu standa og að leiðbeinendur Fjármálavits eru ekki starfsmenn einstakra fjármálafyrirtækja