Pétur Jóhann Sigfússon hefur undanfarnar vikur verið með regluleg innslög í Ísland í dag þar sem hann heimsækir vinnustaði og fær að spreyta sig á hinum ýmsu störfum. Í þættinum í gær heimsótti hann Grindavík og fékk að kynnast fiskvinnslustörfum hjá Einarhamar Seafood. Pétur virtist finna sig vel í slorinu og hafði orð á því að þetta kæmist nokkuð nálægt því að vera skemmtilegasta vinna í heimi.
Pétur var þó ekki sá fljótasti og komst að því að snyrtingin er flókið verk og að lokum fann sér gott pláss í umbúðageymslunni til að leggja sig. Innslagið má sjá á Vísir.is með því að smella hér.