Það var aldeilis gaman í 9.ÞA í morgun, Þórunn Alda kennari og Ragnhildur Amelía sem áttu báðar afmæli sammæltust um að koma með köku í skólann. Það var mikill spenningur í bekknum að fá að smakka svo ljósmyndarinn átti í miklum erfiðleikum að ná einni almennilegri mynd af hópnum. Eins og þið sjáið á meðfylgjandi myndum eru aldrei allir að með í mynd. Hjartanlegar hamingjuóskir með daginn Þórunn og Ragnhildur.