Það var gaman hjá þessum börnum í tónmennt hjá Jónínu Einarsdóttur tónmenntakennara.Forskóli Tónlistarskólans er skyldunám í 1. - 3. bekk grunnskólans og fer kennslan fram í Hópskóla. Kennari tekur hálfan bekk á móti bekkjarkennara. Markmið forskólanáms er að búa nemendur sem best undir hljóðfæranám. Nemendur fá m.a. þjálfun í sköpun, hlustun, söng og dans/hreyfingu. Nemendur læra einnig á blokkflautu í 2. og 3. bekk þar sem nótnalestur og hrynur er þjálfaður.
Kennslustund er byggð upp á fjölbreyttan hátt, nemendur spila í tímum, vinna með skrifleg verkefni og hlustunardæmi. Í forskólanum fá nemendur að kynnast þeim hljóðfærum sem kennt er á við Tónlistarskólann í Grindavík
Útgefið námsefni fyrir forskóla er af mjög skornum skammti. Því leita forskólakennarar að mestu í eigin smiðju, hvað það varðar. Þegar grunnskóli og tónlistarskóli vinna saman með þeim hætti sem verið hefur undanfarin ár, er tryggður ákveðinn jöfnuður fyrir nemendur. Allir nemendur fá tækifæri til að kynnast undirstöðuatriðum í tónlistariðkun foreldrum að kostnaðarlausu, en nemendur þurfa að kaupa blokkflautu.
http://www.grindavik.is/gogn/tonlistarskolinn/Skolanamskra_TG_2015_-_2016.pdf