Sundćfingar fyrir fötluđ börn og ungmenni

  • Sund
  • 16. febrúar 2016

Íþróttasamband fatlaðra í samstarfi við sundþjálfarann Magnús Má Jakobsson munu bjóða upp á endurgjaldslausar sundæfingar í Grindavíkurlaug alla föstudaga út þetta skólaár. Æfingarnar hefjast næstkomandi föstudag, 19. febrúar og verða frá kl. 16.30-17.30.

Æfingarnar eru fyrir fötluð börn og ungmenni á grunnskólaaldri en Magnús verður með aðstoðarmann á æfingunum. Við hvetjum sem flesta til að koma og nýta sér þetta glæsilega íþróttatilboð undir handsleiðslu reynds þjálfara.

Fjölmargir einstaklingar úr röðum fatlaðra sundmanna hafa borið hróður Íslands víða í alþjóðlegum keppnum á borð við Kristínu Rós Hákonardóttur, Ólaf Eiríksson, Jón Margeir Sverrisson og marga fleiri.

Nánari upplýsingar um æfingarnar má nálgast hjá Magnúsi í síma 660-8809 eða á skrifstofu Íþróttasambands fatlaðra á if@ifsport.is og í síma 5144080.

Stærsti sigurinn er að vera með!


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!