A-landslið kvenna hefur verið við æfingar undanfarna daga en fram undan eru landsleikir gegn Portúgal úti og Ungverjalandi heima. Grindvíkingar áttu þrjá fulltrúa í 16 manna hópnum en Björg Einarsdóttir komst ekki í gegnum niðurskurðinn í þetta skiptið. Þær Ingunn Embla Kristínardóttir og Sigrún Sjöfn Ámundadóttir verða því fulltrúar Grindavíkur í landsleiknum gegn Portúgal.
Þeir leikmenn sem skipa lið Íslands í Portúgal eru:
Berglind Gunnarsdóttir - Snæfell · Bakvörður f. 1992 · 177 cm · 2 landsleikir
Bryndís Guðmundsdóttir - Snæfell · Framherji · f. 1988 · 178 cm · 37 landsleikir
Guðbjörg Sverrisdóttir - Valur · Bakvörður · f. 1992 · 180 cm · 9 landsleikir
Gunnhildur Gunnarsdóttir - Snæfell · Bakvörður · f. 1990 · 176 cm · 21 landsleikir
Helena Sverrisdóttir - Haukar · Bakvörður · f. 1988 · 184 cm · 59 landsleikir
Ingunn Embla Kristínardóttir - Grindavík · Bakvörður · f. 1995 · 169 cm · 3 landsleikir
Jóhanna Björk Sveinsdóttir - Haukar · Framherji · f. 1989 · 178 cm · 7 landsleikir
Margrét Kara Sturludóttir - Stjarnan · Bakvörður · f. 1989 · 175 cm · 13 landsleikir
Pálína Gunnlaugsdóttir - Haukar · Bakvörður · f. 1987 · 167 cm · 33 landsleikir
Ragna Margrét Brynjarsdóttir - Stjarnan · Miðherji · f. 1990 · 188 cm · 31 landsleikir
Sandra Lind Þrastardóttir - Keflavík · Miðherji · f. 1996 · 182 cm · 5 landsleikir
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir - Grindavík · Framherji f. 1988 · 181 cm · 38 landsleikir
Mynd: karfan.is