Skráning á Handverkshátíðina í Menningarvikunni, sem verður sunnudaginn 13. mars n.k. Gengur vel. Alls hafa 17 aðilar aðilar skráð sig og eru laus pláss fyrir 10 aðila í viðbót. Skráning er til 1. mars.
Í tilefni Menningarvikunnar 12.-20. mars n.k. verður grindvísk handverkshátíð í Gjánni sunnudaginn 13. mars frá kl. 13:00-18:00. Mikill áhugi er fyrir hátíðinni og hafa verið haldnir tveir undirbúningsfundir og stýrihópur komið að skipulaginu. Skráning er hafin og er fyrirkomulagið eftirfarandi:
Þið skráið ykkur sjálf í Google doc skjal (skipulag á borðum er líka í skjalinu og viðhengi). Smellið á linkinn:
https://docs.google.com/spreadsheets/d/1w5gT3QVjtpa1b3d9QxsLOIjyI9lYRSxH_Ee_eS_D2CE/edit?usp=sharing
Reglur:
• 1 borð á hvern aðila, ókeypis. Alls eru 27 borð í boði (hugsanlega hægt að fjölga ef aðsókn er mikil). Hægt er að sýna og selja. Borðin eru á staðnum (þarf ekki að taka borð með sér). Sýnendur sjá að öðru leyti um sig sjálfir. Grindvískt handverksfólk gengur fyrir með pláss.
• Skráningafrestur til 1. mars.
• Ókeypis aðgangur inn á markaðinn.
• Aðilar í Grindavík sem framleiða matvöru verður boðið að vera með smakk/sölu líka.
Nánari upplýsingar veitir Þorsteinn Gunnarsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, netfang thorsteinng@grindavik.is, sími 420 1100.
Vonandi verður grindvískt handverksfólks (í sem víðasta skilningi þess orðs), duglegt að vera með og skapa góða handverksstemningu í bænum.