Á námskeiðinu verður búið til einfalt hálsmen. Menið er sagað út úr silfurplötu, formað og pússað. Þátttakendur geta komið með teikningu eða fengið munstur á staðnum til að vinna með. Námskeiðið er fyrir 18 ára og eldri og verður haldið 22. febrúar kl. 18-21 Staðsetning er óákveðin.
Verð fyrir einstakling er 5.000 og efni í silfurhálsmen innifalið Athugið að ekki fylgir keðja.
Fjöldi þátttakenda í hóp 6.
Þátttökuskráning á ardiss@gmail.com
Gert er ráð fyrir að sýna skartgripina á handverkssýningunni í menningarvikunni.
Kennari: Árdís Sigmundsdóttir.
Hún hefur unnið í silfur í nokkur ár, aðallega skartgripi. Áhugasamir geta skoðað myndir af nokkrum skartgripum hennar á ardissi.com