Dagur tónlistarskólanna var haldinn hátíðlegur laugardaginn 13. febrúar 2016 með opnu húsi og kaffihúsatónleikum.
Heitt var á könnunni og gestir og gangandi komu og fengu sér kaffibolla eða djús og hlýddu á nemendur tónlistarskólans sem komu fram á heila og hálfa tímanum milli kl. 14:00 og 16:00. Á milli tónleika skoðuðu gestirnir skólann og kynntu sér starfsemi hans.
Húsfyllir var á öllum fjórum tónleikunum og stóðu nemendur og kennarar sig með prýði og voru sér og skóla sínum til mikils sóma.