Námskeið sem haldin er í tengslum við Menningarvikuna fara nú af stað hvert á fætur öðrum og stefnir í góða aðsókn. Í dag er Ragga nagli með matreiðslunámskeið í Grunnskóla Grindavíkur frá kl. 17-21. Þó nokkrir eru búnir að bóka sig en nokkur laus pláss. Skráning fer fram í gegnum netfangið bokasafn@grindavik.is. Ragga er svo með fyrirlestur á morgun kl. 18:00 í Gjánni og er aðgangur ókeypis.
Á morgun hefst svo námskeið í glermósaík hjá Handverksfélaginu Greip og er fullbókað á námskeiðið. Þá eru fjölmörg fleiri námskeið framundan eins og í textíl, gimbunámskeið, matreiðslunámskeið, viðhald og viðgerðir gamalla húsa og margt fleira. Sjá nánar hér um yfirlit námskeiða.