TónSuð (Tónlistarskólarnir á Suðurnesjum) stóðu fyrir sameiginlegu námskeiði sem haldið var í Tónlistarskólanum í Grindavík miðvikudaginn 10. febrúar (á öskudag). Námskeiðið að þessu sinni var haldið af Ingvari Jónssyni hjá Profectus. Á námskeiðinu var farið yfir hvernig hugsun hvers og eins skapar okkar einstaka „raun"-veruleika.
• Af hverju eiga bláir og grænir nemendur auðveldara með að
skuldbinda sig við heimanám og æfingar?
• Hver er ástæða þess að fólk á stundum erfitt með að ná saman?
• Af hverju er hinn græni hálfgerður tréhestur í augum hins gula?
• Af hverju virkar þessi blái stundum kaldur og fjarrænn?
• Af hverju eru tölvupóstarnir hjá þessum rauðu svona langir?
Svör við þessum spurningum má finna í NBI-fræðunum sem farið var yfir ásamt öðru spennandi efni.
Allir kennarar tóku NBI-huggreininguna og fengu niðurstöðurnar útprentaðar ásamt leiðbeiningum um hlutfall og eiginleika hvers litar í persónulegu greiningunni.
Einnig voru leiðbeiningar um hvernig best megi nýta sér greiningarnar til að læra á sjálfan sig og haga samskiptum sínum við fólk með ólíka eiginleika á sem bestan hátt. Svo var tekið á því hvernig styrkja megi þá þætti sem verst koma út í greiningunni.
Þetta var mjög þarft námskeið sem vakti mikla ánægju tónlistarkennaranna.