Við fengum ábendingu frá bæjarbúa um að næstum hefði orðið stórslys á hringtorginu við Austurhóp í gær þegar ekið var inn í það á miklum hraða í öfugri aktursstefnu, væntanlega með það að markmiði að spara sér þarna þær dýrmætu 3 sekúndur sem það hefði tekið að aka löglega í gegnum hringtorgið. Að gefnu tilefni brýnum við það fyrir vegfarendum í Grindavík að virða umferðarreglur í hvívetna og deilum um leið þessum ágætu reglum frá lögreglunni um umferð í hringtorgum:
- Alltaf að beygja inn á hringtorg til hægri.
- Umferð í hringtorgi hefur forgang á umferð sem fer inn í hringtorg.
- Umferð á innri hring hefur forgang gangvart umferð á ytri hring.
- Sé ekið á ytri hring framhjá útkeyrslu er stefnumerki gefið til vinstri og fylgst vel með umferð á innri hring.
- Eigi að fara út af hringtorgi á fyrstu útkeyrslu þá að nota ytri hring.
- Gefa stefnuljós til hægri áður en ekið er út af hringtorgi.
- Það má þá ekki skipta um akrein á hringtorgi.