Öskudagurinn á unglingastigi var ljúfur og skemmtilegur. Kennt var fram að nesti og síðan tók við val sem nemendur voru búnir að skrá sig í. Í boði var að skrá sig í eftirfarandi: Litabækur (mandölur og fleira), Just Dance, spurningakeppni (tvær mismunandi), félagsvist, Kahoot.it, spil og svo tvær mismunandi bíómyndir. Klukkan 11:15 var Kötturinn sleginn úr tunnunni á sal. Dagurinn heppnaðist einstaklega vel og var mjög skemmtilegur eins og meðfylgjandi myndir sýna. Fleiri myndir koma síðan á facebook-síðu skólans. https://www.facebook.com/grunnskoligrindavik/