Góðir og athyglisverðir gestir mættu í söngstundina á yngsta stigið. Þetta voru þeir félagar Veigar og Rannvar, sómasamlega klæddir eins og þeirra er siður. Allir voru í öskudagsstuði, mættir í búningum og náttfötum af ýmsu tagi. Heimsókn gestanna mæltist vel fyrir og börnin tóku á móti þeim með gleðibrag. Öskudagurinn á yngsta stigi heppnaðist eins og best verður á kosið og munu myndir frá deginum birtast hér á síðunni á næstu dögum.