Öskudagurinn var reglulega skemmtilegur í skólanum í dag. Dagurinn var uppbrotsdagur, þ.e. styttri nemendadagur. Kennt var fram að nesti á öllum stigum og síðan tók við val sem nemendur voru búnir að skrá sig í. Á miðsdtigi var í boði var að skrá sig í; stöðvar og leiki í íþróttahúsinu, skák, sköpun, smíði og Just Dance. Klukkan 10:45 var svo Kötturinn sleginn úr tunnunni á sal. Dagurinn þótti heppnast einstaklega vel og var mjög skemmtilegur eins og meðfylgjandi myndir sýna. Miklu fleiri myndir koma síðan á Facebook-síðu skólans. https://www.facebook.com/grunnskoligrindavik/
Þessi varð að fá að fylgja með. Geiri og gellurnar, fastagestirnir í sundlauginni.