Íþróttasamband fatlaðra býður upp á sundæfingar fatlaðra barna, 16 ára og yngri, í sundlaug Grindavíkur. Æfingarnar verða endurgjaldslausar út þetta skólaár og mun Magnús sundþjálfari stýra þeim ásamt aðstoðarmanni. Sundæfingarnar hefjast föstudaginn 12. febrúar n.k. og verða alla föstudaga frá kl. 16:30-17:30.