Álagningu fasteignagjalda fyrir árið 2016 er lokið. Gjalddagar eru eins og fyrri ár 10 og er sá fyrsti 1. febrúar og sá síðasti þann 1. nóvember 2016. Álagningarseðlar eru aðgengilegir á island.is. Álagningarseðlar vegna eigenda 67 ára og eldri og fyrirtækja verða jafnframt prentaðir út og sendir í pósti.
Greiðsluseðlar vegna 1. gjalddaga verða sendir út í vikunni og er eindagi í lok febrúar.
Hér má nálgast ítarlegri upplýsingar um fasteignagjöld 2016