Á laugardaginn 13. febrúar nk. verður haldið upp á dag tónlistarskólanna.
Nemendur eru nú í óðaönn að undirbúa sig fyrir opið hús sem er á laugardaginn milli kl.14 og 16 þar sem þeir verða með uppákomur á heila og hálfa tímanum.
Á myndbandinu hér má sjá systkinin Eniku Máneyju Valgeirsdóttur, söngnema og Magnús Engil Valgeirsson, píanónema taka æfingu.