Margrét Sverrisdóttir, Bertel Benóný Bertelsson og Matthew Deaves kynntu Europass ferilskrána fyrir nemendum 10. bekkja. Europass er rafræn ferilskrá sem er mjög þægileg þegar sótt er um atvinnu. Europass er safnheiti yfir stöðluð skjöl sem staðfesta menntun og starfshæfni.
Markmið Europass er að auðvelda gagnsæi menntunar og starfsreynslu sem aflað er og samhæfingu prófskírteina og viðurkenninga milli Evrópulanda. Europass er fyrir alla sem vilja skjalfesta nám sitt eða reynslu í Evrópulöndum. Europass ferilskrá er frekar einföld og er á mörgum tungumálum. Hún er því hentug fyrir alla sem eiga eftir að skrá sinn náms- og starfsferil. Ferilskrána er að finna á europass.is. Rannís hefur yfirumsjón með Europass á Íslandi.