Sviðsstjórar hjá Grindavíkurbæ ásamt bæjarstjóra áttu í vikunni góðan fund með lögreglustjóranum á Suðurnesjum, en um árlegan yfirlitsfund er að ræða þar sem farið er yfir tölfræði síðasta árs og rætt um áherslur og áætlanir á nýju ári. Afbrotum í umdæminu fer fækkandi frá ári til árs og má með sanni segja að Grindavík sé afar friðsæll staður.
Hér að neðan má sjá fjölda brota í Grindavík síðustu ár. Eins og sjá má er talan á hraðri niðurleið sem verður að teljast mjög jákvæð þróun. Örlítil aukning varð þó á milli áranna 2014 og 2015 en taka verður tillit til þess að tæplega milljón ferðamenn heimsækja Grindavík ár hvert og fjölgar frá ári til árs.
Eitt stingur þó í stúf í Grindavík samanborið við umdæmið í heild og það er aukin tíðni umferðaróhappa. Grindvíkingar hafa löngum vakið athygli á því, en talað fyrir daufum eyrum, að tími sé kominn á endurbætur á Grindavíkurvegi sem og Norðurljósavegi. Þessir vegir voru einfaldlega ekki hannaðir fyrir þessa umferð og vonandi er þess ekki langt að bíða að bætt verði úr í þessum málaflokki.
Í umdæmi lögreglustjórans á Suðurnesjum öllu hefur lögbrotum fækkað mjög undanfarin ár, úr 3.758 árið 2010 niður í 2.240 árið 2015. Umferðalagabrotin eru langsamlega flest, þar á eftir hegningarlagabrot og síðan sérrefsilagabrot.
Á fundinum var einnig farið yfir áherslur komandi árs og hvað hafði gengið vel á liðnu ári, en lögreglan á Suðurnesjum hóf árið 2013 sérstakt átaksverkefni varðandi málsmeðferð heimildisofbeldismála sem varð til þess að önnur lögreglulið hafa tekið upp sama verklag. Þau mál verða áfram rannsökuð og afgreidd sem forgangsmál.
Þá er það einnig stefna lögreglunnar að halda úti sem fyrr öflugri og sýnilegri löggæslu á Suðurnesjum, innan þeirra fjárheimilda sem embættinu eru settar. Aukin áhersla verður sett í fíkniefnamál, þ.e. að hafa uppi á þeim sem eru að selja og framleiða ólögleg fíkniefni.