Lestrarspretti á yngsta stigi lýkur nú um helgina. Nemendur í 2. bekk hafa verið duglegir í mínútulestrinum og gaman hefur verið að fylgjast með súluriti sem nemendur vinna jafnhliða þar sem fylgst er með hve mörg orð bætast við þegar textinn er lesinn aftur yfir.