Í nýjasta þætti í Sjónvarpi Víkurfrétta er skemmtilegt viðtal við fjallgöngugarpinn Samúel Alfreðsson en hann gengur helst daglega á Þorbjörn. Samúel er langt frá því sá eini sem gengur Þorbjörninn reglulega sér til heilsubótar en það sem gerir ferðir hans merkilegar er sú staðreynd að hann er 82 ára en gefur yngri göngumönnum ekkert eftir!
Innslagið um Samúel má sjá hér að neðan en það hefst þegar 14 mínútur og 10 sekúndur eru liðnar af þættinum: