Lestrarsprettur stendur yfir þessa vikuna og þá næstu, á yngsta stigi skólans. Allir nemendur taka þátt í Lestrarátaki Ævars vísindamanns þar að auki er stuðst við lestrarstefnu skólans og leið til læsis. Í fyrsta bekk lesa foreldrar fyrir og með börnum sínum, lesin eru mínútuspjöld daglega heima í 2. bekk og í 3. bekk lesa nemendur texta og taka tímann, skrá og lesa svo aftur og enn aftur til að fylgjast með framförum. Samkvæmt lestrarstefnu skólans er ákveðinn rithöfundur kynntur og að þessu sinni er það Kristín Helga Gunnarsdóttir. Það er marg sannað að mikilvægt er að halda bókum að börnum. Í anddyri skólans má sjá ýmsa góða punkta og hvetjandi plögg varðandi lestur. Eru foreldrar hvattir til að kíkja á það með börnum sínum.