Auglýst eftir tilnefningum um Bćjarlistamann Grindavíkur 2016

  • Fréttir
  • 26. janúar 2016

Frístunda- og menningarnefnd Grindavíkurbæjar auglýsir eftir tilnefningum um Bæjarlistamann Grindavíkur 2016. Útnefningin verður tilkynnt í tengslum við Menningarviku Grindavíkurbæjar 12.-20. mars nk. Ábendingar þurfa að hafa borist frístunda- og menningarnefnd í síðasta lagi 1. febrúar 2016 á netfangið heimasidan@grindavik.is.

Nefndin óskar hér með eftir tilnefningum eða ábendingum frá Grindvíkingum um einstakling eða samtök listamanna í Grindavík, eða tengjast Grindavík á einn eða annan hátt, sem til greina koma að bera sæmdarheitið Bæjarlistamaður ársins 2016.

Listamenn sem eru, eða hafa verið búsettir í Grindavík, koma til greina. Listamenn sem ekki eru með lögheimili í Grindavík þurfa að tengjast bæjarfélaginu með einhverjum hætti. Nafnbótin getur hvort sem er hlotnast einstaklingum eða hópi.

Frístunda- og menningarnefnd Grindavíkur útnefnir annað hvert ár Bæjarlistamann Grindavíkur og annað hvert ár Menningarverðlaun Grindavíkur, samkvæmt nýsamþykktri Menningarstefnu Grindavíkur.

Bæjarlistamaður Grindavíkur:
2014 Halldór Lárusson

Menningarverðlaun Grindavíkur:
2015 Harpa Pálsdóttir
2013 Einar Lárusson
2012 Þorbjörn hf.
2011 Bryggjubræður, Aðalgeir og Kristinn Jóhannssynir
2010 Ómar Smári Ármannsson og Saltfisksetrið

Reglugerð um Bæjarlistamann Grindavíkur


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir