Vegna viðhaldsvinnu við götu og niðurföll á Leynisbraut og við Heiðarhraun verða umtalsverðar tafir á þeim götum í dag. Þrengingar verða settar upp og á einhverjum tímapunkti mun þurfa að loka gatnamótum Heiðarhrauns og Leynisbrautar. Reiknað er með að lokað verði snemma í fyrramálið, fimmtudag. Vegfarendur eru beðnir um að sýna tillitssemi og virða merkingar og lokanir.
Ath. að myndin tengist fréttinni ekki beint.