Sl. föstudag fengum við góða gesti í heimsókn frá Vodafone á Íslandi. Gestirnir komu færandi hendi en Grunnskóli Grindavíkur er einn af þremur skólum sem dreginn var úr verðlaunapotti Vodafone í tengslum við fræðsluátakið „Ber það sem eftir er: Um sexting, hefndarklám og netið" sem Vodafone stóð fyrir í samstarfi við Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur.
Í verðlaun hlaut skólinn aðalvinninginn, eða þrjár flottar Vodafone Smart Tab 4 spjaldtölvur. Í verðlaunapottinum voru skólar sem stóðu fyrir atburðum í tengslum við átakið. Við þökkum stjórn foreldrafélagsins fyrir þeirra framtak en þau stóðu fyrir fyrirlestri um sexting, hefndarklám og netið fyrir alla foreldra í tengslum við aðalfund. Halldóra Kr. Magnúsdóttir skólastjóri tók við verðlaununum fyrir hönd skólans.