Samkvæmt 6. grein samþykkta Ungmennaráðs er boðað til kosningafundar í Ungmennaráði mánudaginn 18. janúar kl. 20:00 í félagsmiðstöðinni Þrumunni. Kosið verður um einn aðalmann og einn varamann á aldrinum 13-16 ára (8.-10. bekk). Fimm einstaklingar buðu sig fram en framboðsfrestur var til og með 12. janúar síðastliðinn.
Eftirtaldir eru í framboði (stafrófsröð):
• Belinda Berg Jónsdóttir
• Gunnlaugur Gylfi Bergþórsonn
• Jenný Geirdal Kjartansdóttir
• Ólöf Rún Óladóttir
Bein kosning fer fram á meðal nemenda í 8.-10. bekk í Grunnskóla Grindavíkur, sem mæta í Þrumuna á framboðsfundinn.
Dagskrá:
1. Þeir frambjóðendur sem vilja kynna sig og sínar áherslur mega flytja ræðu í 3 mín. (ekki skylda).
2. Kosning aðalmanns í Ungmennaráð.
3. Kosning varamanns í Ungmennaráð.