Frístundadagskrá eldri borgara voriđ 2016 - Fjölbreytt frambođ

  • Fréttir
  • 14. janúar 2016

Dagskrá tómastundastarfs eldri borgara vorið 2016 er komin á netið (sjá neðst). Algjör bylting hefur orðið í aðstöðumál fyrir félagsstarf eldri borgara eftir að Miðgarður opnaði við Víðihlíð 2011. Starfið fer þó ekki eingöngu fram þar en þar engu að síður opið alla virka daga og hægt að kíkja við og fá sér kaffi og spjalla eða kíkja í blöðin þó svo að engin formleg dagskrá sé skipulögð þá stundina.

Boccia byrjar 12. jan. Leikfimi í íþróttahúsinu byrjar 18. jan. Útskurður, postulín, keramik og handavinna byrja 12. jan.

Ýmislegt verður í boði á vorönninni, s.s. vatnsleikfimi, þæfing, kertagerð, tálgun, silfursmíði, útsögun og fleira, verður það auglýst nánar á www.grindavik.is.

Séra Elínborg kemur til okkar í leikfimi í Miðgarði annan hvern miðvikudag í spjall. Alla virka daga eruð þið velkomin að koma og fá kaffi, spjalla, lesa blöðin, hittast og einnig er aðgangur að tölvum og fleira. Kær kveðja, starfsfólk Miðgarðs

Nýtt

Námskeið í Silfursmíði fyrir byrjendur byrjar þann 25.janúar. Námskeiðið verður á mánudögum frá 13-15 í fjögur skipti. Námskeiðið verður í Miðgarði og kostar 2500kr. Skráning í síma 426-8014

 Vordagskrá eldri borgara 2016 - frístundir


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!