Vélsmiđja Grindavíkur og Skeljungur í samstarf

  • Fréttir
  • 13. janúar 2016

Vélsmiðja Grindavíkur mun taka yfir rekstur verslunar Skeljungs í Grindavík þann 15. janúar næstkomandi. Samstarfið felur í sér að Vélsmiðja Grindavíkur tekur að sér alla þjónustu við dælur, bátadælur ásamt rekstri verslunar hér í Grindavík.

Saman stefna félögin að því að auka enn frekar við þjónustu á svæðinu ásamt því að auka við vöruúrval. Mikil áhersla er lögð á það að með breytingunum stafi engin röskun til viðskiptavina heldur upplifi þeir viðskiptin og þjónustu með allra besta móti.

„Við fögnum þessum áfanga sem að styrkir stoðir rekstursins enn frekar í Grindavík og á Suðurnesjunum öllum þar sem að við fáum vel kunnan og metnaðarfullan samstarfaðila með okkur í lið. Um leið og við óskum Ástmari Kára og Jóhönnu V. Harðardóttur velfarnaðar í nýjum ábyrgðarstöðum hjá Vélsmiðju Grindavíkur, færum við þeim þakkir fyrir vel unnin störf í þágu Skeljungs," segir Sigurður Orri Jónsson framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs hjá Skeljungi.

Víkurfréttir greindu frá.

Mynd: Grindavik.net


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir