Grindvískir foreldrar eru að sjálfsögðu til fyrirmyndar þegar kemur að öryggi barna þeirra í umferðinni. Við erum stolt af foreldrum barna í leikskólanum Laut. Okkur var að berast viðurkenning fyrir góðan árangur því öll börnin í leikskólanum Laut voru í réttum öryggisbúnaði í bíl á leið til leikskólans.