Hin árlega þrettándagleði fór fram í íþróttahúsinu í gær líkt og undanfarin ár og að vanda var hún vel sótt. Á milli 500 og 600 manns mættu í íþróttahúsið þar sem boðið var upp á skemmtilega dagskrá með blöndu af söng, dansi og íþróttum, heiðrun á Grindvíkingi ársins og svo komu tveir jólasveinar í heimsókn og skemmtu ungviðinu. Búningakeppnin var að sjálfsögðu á sínum stað.
Annað árið í röð sá Petrúnella Skúladóttir um íþróttafjör fyrir hressa krakka en hún bauð upp á ýmsar stöðvar. Þetta mæltist ákaflega vel fyrir og því salurinn fylltist af fjörugum krökkum sem fengu útrás fyrir hreyfiorku sína.
Þá var boðið upp á andlitsmálun. Dagskráin gekk vel fyrir sig og gaman að sjá hvað við eigum hæfileikarík ungmenna hér í Grindavík.
Flugeldasýningunni var frestað vegna veðurs til næsta laugardags kl. 18:00.
Hér eru nokkrar myndir frá fjörinu og enn fleiri á Facebook
Sjá einnig frétt um heiðrun Grindvíking ársins.
Sjá frétt um búningakeppnina.