Vegna fjölda fyrirspurna höfum við ákveðið að víkka aldursbilið í Barnakór Grindavíkur. Strákar og stelpur í 4. til 10. bekk sem hafa gaman af söng eru nú hvött til að sækja um.
Skráning í kórinn fer fram á heimasíðu Tónlistarskólans https://www.schoolarchive.net/school/AdmissionForm.aspx?orgId=27 eða í síma 420-1130
Ekkert gjald er tekið fyrir veru í kórnum.
Barnakór Grindavíkur er samstarfsverkefni Tónlistarskólans, Grindavíkurkirkju, Grunnskóla Grindavíkur og Grindavíkurbæjar.
Kórstjórar eru: Rósalind Gísladóttir og Bjartur Logi Guðnason.