Eftir tveggja ára hlé verður blásið til leiks í firmakeppni knattspyrnudeildar UMFG í dag, miðvikudaginn 30. desember og fer mótið fram í íþróttahúsinu. Alls eru 20 lið skráð til leiks, 16 karlalið og 4 kvennalið. Leiktími er 2x4 mínútur. Karlaliðunum er skipt í fjóra riðla en kvennaliðin leika í einum riðli þar sem allir leika við alla.
Sjoppan verður opin í íþróttamiðstöðinni meðan á móti stendur.
Firmamótið fór síðast fram 2013 og þá vann lið Sjóla, annað árið í röð.
Leikjaniðurröðun firmakeppninnar 2015.