Grindavík í undanúrslit: Hvađ gerir Friđrik núna?
Grindavík tryggđi sér sćti í undanúrslitum Íslandsmótsins í körfubolta karla
eftir öruggan sigur á ÍR í Seljaskóla, 85-71. Grindavík vann ţví einvígiđ 2-0.
Páll Axel Vilbergsson og Nick Bradford voru báđir međ 21 stig fyrir Grindavík.
Ţorleifur Ólafsson átti fína spretti međ 18 stig og Brenton Birmingham var duglegur
međ 8 stig, 8 stođsendingar, 6 fráköst og 3 stolna bolta.
Páll Axel var reyndar ekki alveg sáttur viđ leik síns liđs í viđtali viđ karfan.is:
,,Nei, ţetta var alls ekki auđvelt. Ţađ kom okkur ekki á óvart ađ ÍR skyldi minnka muninn ţegar Ómar var rekinn út
af og liđ minnka muninn gegn öđrum liđum sem slaka á og ţađ var einmitt ţađ sem
viđ gerđum. Ţađ var eins og viđ hefđum bara búist viđ ţví ađ ţeir myndu leggjast
niđur og gefast upp. Kannski gerist ţađ ómeđvitađ hjá okkur,? sagđi Páll Axel
sem var ekki nćgilega sáttur viđ hvađ leikur Grindavíkur var kaflaskiptur.
,,Ţetta var svona í síđasta leik, kaflaskipt og sigurinn í tölum segir ekkert
allt saman eins og í fyrsta leik. Viđ náđum góđum kafla í báđum leikjunum en ÍR
koma til baka og fá međbyr en svo fáum viđ aftur góđan kafla og ţađ dugđi til.
Í kvöld er fátt annađ hćgt ađ segja um lokamínúturnar hjá okkur en ađ ţćr hafi
veriđ ljótar! Viđ spiluđum ágćtlega úr stöđunni en ţađ var ekki fallega gert,
hengum á tuđrunni og sóttum ekki á körfuna,? sagđi Páll Axel sem fćr nú góđa hvíld
međ Grindavíkurliđinu og hvernig verđur hún notuđ?
,,Ţađ má Guđ vita hverju Friđrik ţjálfari tekur upp á. Í fyrra fyrir úrslitakeppni
var um 10 daga hvíld og ţá tók hann okkur bara í Boot Camp. Viđ höfđum bara gott
af ţví en eina sem ég veit er ađ ţađ er frí á morgun en hvađ Friđrik gerir viđ
okkur eftir ţađ kemur bara í ljós,? sagđi Páll kátur í leikslok.