Glćsileg ţrettándagleđi 6. janúar

  • Fréttir
  • 29. desember 2015

Hin árlega þrettándagleði í Grindavík verður haldin miðvikudaginn 6. janúar 2016. Að vanda munu börn ganga í hús og sníkja nammi og þá verður skemmtidagskrá í íþróttahúsinu og flugeldasýning á vegum Björgunarsveitarinnar Þorbjarnar. Dagskráin er annars eftirfarandi:

Venju samkvæmt munu börn klæða sig upp í skemmtilega búninga og ganga í hús og sníkja nammi í heimahúsum og fyrirtækjum.

Kl. 18:00 Upphitun í íþróttahúsi 
Andlitsmálun í anddyri íþróttahússins á vegum Þrumunnar. 
Skráning í búningakeppnina. Keppnin verður þrískipt; 
A) Leikskólabörn B) 1.-3. bekkur C) 4.-8. bekkur.
Myndataka (allar myndir settar á Facebooksíðu bæjarins).
Tónlist í íþróttasal. Íþróttafjör fyrir hressa krakka frá kl. 18-19.

Kl. 19:00 Dagskrá í íþróttahúsi:

  • Atriði frá fimleikadeild.
  • Álfakóngur og álfadrottning syngja. Sigga Mæja og Palli. Undirleikur: Renata Ivan.
  • Atriði frá dansskóla Hörpu & Erlu.
  • Söngatriði frá nemendum Tónlistarskólans.
  • Sýningaratriði frá taekwondodeild UMFG. 
  • Útnefning á Grindvíkingi ársins.
  • Úrslit í búningakeppni.
  • Jólasveinar koma í heimsókn. 

Kaffi- og eða sjoppusala í íþróttahúsinu á vegum 7. og 8. flokks karla í 
körfuknattleik. Allur ágóði rennur í ferðasjóð. 

Kl. 20:00 Gengið fylktu liði niður að Kviku - kyndilberar frá Hafbjörgu
Kl. 20:15 Glæsileg flugeldasýning við höfnina í boði: 

Besa, Bláa Lónið, EB. þjónusta, Einhamar Seafood, Fiskmarkaður Suðurnesja, 
Fiskverkun ÓS, Fjórhjólaævintýri, Flutningaþjónusta Sigga, GG Sigurðsson, Grindin, Grindavíkurbær, Hárhornið, Hérastubbur bakari, Hjólbarðaverkstæði Grindavíkur, Íslandsbleikja, Jón og Margeir, Jónsi Múr, Köfunarþjónusta Gunnars, Landsbankinn, Málningaþjónusta Grétars, Málningaþjónusta Rúnars, Nettó, Northern Light Inn, 
Olís, Palóma, Papa's Pizza, PGV-Framtíðarform, Seglasaumur Sigurjóns, Shell (Orkan), Sílfell, Sjómannafélag Grindavíkur, Sjómannastofan Vör, Sjóvá, Staðarþurrkun, Stakkavík, Tannlæknastofa Guðmundar Pálssonar, TG Raf, Tryggingamiðstöðin, Veitingahúsið Salthúsið, Vélsmiðja Grindavíkur, Vísir, Þorbjörn, Örninn GK 203.

Þrettándagleðin er samstarfsverkefni frístunda- og menningarnefndar Grindavíkurbæjar og Björgunarsveitarinnar Þorbjarnar.

Grindavíkurbær óskar öllum bæjarbúum velfarnaðar á árinu 2016.

 

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir