Vilt ţú gerast dagforeldri?

  • Fréttir
  • 28. desember 2015

Mikil þörf er nú fyrir fleiri dagforeldra hjá Grindavík. Í dag eru fimm dagforeldrar starfandi hjá Grindavíkurbæ en það er mikil þörf á nokkrum í viðbót og því auglýsir Grindavíkurbær eftir aðilum sem hafa áhuga á að gerast dagforeldrar.

Starf sem dagforeldri getur hentað einstaklega vel fyrir þá foreldra sem eru heima með sitt eigið barn og geta hugsað sér að taka 1-3 í viðbót í dagvistun, hluta úr degi eða allan daginn. Starfið getur verið tímabundið á meðan viðkomandi foreldri bíður eftir leikskólaplássi fyrir eigið barn eða til frambúðar. Þetta starf er mjög gefandi. Dagforeldrar eru verktakar hjá Grindavíkurbæ sem veitir leyfi fyrir starfseminni og annast eftirlit.

Hér er gott tækifæri fyrir jákvæðan einstakling að skapa sér starfsvettvang og starfsumgjörð sem hentar honum og hans heimili.

Nánari upplýsingar gefur Sigurlína Jónasdóttir, daggæslufulltrúi Grindavíkur, sími 420 1100 og netfang sigurlina@grindavik.is


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir