Vinnuskóli Grindavíkur mun starfrækja skóla- og matjurtargarða sumarið 2016. Þar gefst bæjarbúum kostur á að leigja sér matjurtargarð gegn vægu gjaldi. Unnið er að skipulagi en matjurtargarðurinn verður í reit í eigu bæjarins við Bakkalág, suðvestan megin við Stakkavík. Landið er talið henta vel undir matjurtargarða og er í nálægð við bæ og vatn.
Fyrirkomulagið verður nánar auglýst þegar nær dregur. Grindavíkurbær bauð síðast upp á skóla- og matjurtargarða sumarið 2011.
Þeir sem hafa áhuga á kaupa forræktað grænmeti í matjurtargarðinn geta sent fyrirspurn á bassi@grindavik.is
Þær tegundir sem í boði verða eru:
• Gulrætur
• Spergilkál
• Blómkál
• Hnúðkál
• Grænkál
• Blaðsalat
• Ítölsk steinselja
• Gulrófur
• Graslaukur
• Sellerí
• Hvítkál
• Klettasalat
• Mynta
• Dill