Framkvćmt fyrir 455 m.kr. á nćsta ári

  • Fréttir
  • 23. desember 2015

Samkvæmt fjárhagsáætlun verður eignfærð fjárfesting fyrir árið 2016 verður um 455 milljónir króna. Þar má helst nefna fjölgun íbúða fyrir aldraða í Víðihlíð (84 m.kr), fyrsta áfanga í endurnýjun á Miðgarði (72 m.kr.), hafist verður handa við hönnun og útboð á nýju íþróttahúsi (30 m.kr.) og breytingar og stækkun á bæjarskrifstofunum (55 m.kr.). 

Þá má nefna ýmislegt viðhald við gamla sundlaugarhúsið, þar á meða endurnýjun á suðurhlið (27 m.kr), við  grunnskólann á Ásabraut, Laut, ýmsar lagfæringar á gangstéttum, lýsingu, áframhaldandi uppbygging göngu- og hjólastíga, og þá er talsverð gatnagerð. Einnig verður lögð áhersla á gróðursetningu og þá verður hafist handa við fyrsta áfanga á útikennslusvæði við Sjómannagarðinn, svo eitthvað sé nefnt.

Greinin birtist fyrst í Járngerði, fréttabréfi Grindavíkurbæjar



Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!

Fréttir / 2. apríl 2024

Ađstođ viđ fjármál