Það verður opið svið á kaffihúsinu Bryggjunni annan í jólum. Þetta verður í sautjánda sinn sem opna sviðið verður haldið en það hefur fengið hreint ótrúlegar viðtökur. Nú verða leikin alls konar jóla, ekkijóla og ekkiekkijólalög og gestum er meira en velkomið að taka lagið með þeim Halldóri Lárussyni trommara, Ólafi Þór Ólafssyni gítarleikara og Þorgils Björgvinssyni bassaleikara. Munið að það kostar ekkert inn, bara mæta með bros í hjarta og síða barta