Hið árvissa og sívinsæla jóla-móta-ball Geimfaranna verður haldið á Salthúsinu þann 26. desember næstkomandi. Ballið hefst á miðnætti stundvíslega og verður forsala á Salthúsinu samdægurs. Íris Kristinsdóttir gekk á dögunum til liðs við sveitina og mun eflaust trylla lýðinn og þá mun grindvíska hljómsveit Brimróður leika í hléi. Missið ekki af þessu!