Gleđileg jól í Grindavík

  • Fréttir
  • 21. desember 2015

Jólin eru sannkölluð fjölskylduhátíð. Rannsóknir sýna að ungmennin okkar vilja að fjölskyldan verji meiri tíma saman og þau vilja sjálf leggja sitt af mörkum til þess. Í þessu ljósi hvetur samráðshópur um forvarnir í Grindavík alla Grindvíkinga til að huga að heilbrigðri samveru, ekki síst án truflunar snjallsíma og samfélagsmiðla, til að samveran verði innihaldsríkari.

Við hvetjum stórfjölskylduna til þess að rækta samskiptin við hvert annað, ekki síst yngri börnin t.d. í formi lesturs, að spila, leika saman eða einfaldlega spjalla saman. Ræðum við börnin okkar og setjum skýrar reglur. Verum ábyrg og vakandi gagnvart mannlífinu í kringum okkur.

Hugum vel að börnum okkar og ungmennum. Grindavík er fjölskylduvænn bær og hér er gott að búa. Við, sem hér búum, erum andlit bæjarins út á við. Það orð sem fer af bænum okkar veltur á hegðun okkar og framgöngu. 

Við hvetjum ykkur til að standa vörð um hagsmuni íbúanna og um leið bæjarfélagsins á þessari jólahátíð. Við hvetjum alla foreldra til að vera vakandi fyrir því hvað unglingarnir taka sér fyrir hendur í kringum jólahátíðina. Leyfum ekki eftirlitslaus partý. Virðum lögboðin útivistartíma og verum vakandi fyrir skilaboðum sem ganga á milli ungmennanna. Mikilvægi sterkra tengsla milli unglinga og foreldra verða seint ofmetin. Niðurstöður fjölmargra rannsókna sýna að samvistartími og samvera unglinga með foreldrum og fjölskyldu hafi margvísleg jákvæð áhrif í lífi þeirra. 

Meginmarkmið forvarna er heilbrigði og hamingja barna, ungmenna og fjölskyldna þeirra þannig að Grindvík standi undir nafni sem fjölskylduvænt bæjarfélag. Það er stefna Grindavíkurbæjar að styrkja fjölskylduna og treysta samheldni hennar og velferð. 

Með von um gleðilega jólahátíð.

Þorsteinn Gunnarsson
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs

Nökkvi Már Jónsson
Sviðsstjóri félagsþjónustu og fræðslumála

Sigurður Enoksson
Formaður UMFG

Petrína Baldursdóttir
F.h. Grunnskóla Grindavíkur

Telma Rut Eiríksdóttir
F.h. foreldrafélags leikskólans Laut


Fríða Egilsdóttir
F.h. leikskólans Laut

Hulda Jóhannsdóttir
F.h. leikskólans Króks

Ármann Halldórsson
F.h. foreldrafélags leikskólanum Króki

Sigurður Bergmann
F.h. lögreglunnar

Laufey Birgisdóttir
F.h. Heilsugæslunnar

Halldór Einir Smárason
F.h. Golfklúbbs Grindavíkur

Sr. Elínborg Gísladóttir
F.h. Grindavíkurkirkju

Kristín María Birgisdóttir
F.h. Frístunda- og menningarnefndar

Otti Sigmarsson
F.h. Björgunarsveitarinnar Þorbjarnar

Hilmar K. Larsen
F.h. Hestamannafélagsins Brimfaxa

Herdís Gunnlaugsdóttir
F.h. foreldrafélags Grunnskóla Grindavíkur

Greinin birtist fyrst í Járngerði, fréttabréfi Grindavíkurbæjar


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir