Síðustu vikuna fyrir jól hafa nemendur í íþróttum farið í gamla, góða Tarzanleikinn. Löng hefð er fyrir því að fara í þennan leik fyrir jólin og ríkir mikil ánægja og gleði þegar hann er á dagskrá. Að sögn Maríu Jóhannesdóttur íþróttakennara, hefur leikurinn haldist nánast óbreyttur í mörg ár. Leikurinn er eltingaleikur, íþróttasalurinn breytist í frumskóg og þess þarf að gæta að stíga ekki á gólfið þar sem ekki má stíga! Myndirnar voru teknar í morgun þegar 1. M var í Tarzanleiknum.